Samantekt um þingmál

Evrópskir langtímafjárfestingarsjóðir

137. mál á 153. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að kveða á um skilyrði þess að heimilt sé að stofna, reka og markaðssetja sérhæfða sjóði sem evrópska langtímafjárfestingarsjóði eða ELTIF.

Helstu breytingar og nýjungar

Meginefni frumvarpsins er lögfesting reglugerðar (ESB) nr. 2015/760 um evrópska langtímafjárfestingarsjóði (ELTIF-reglugerðarinnar) og nauðsynlegra ákvæða þar að lútandi, s.s. um hvernig eftirlit fari fram, um heimildir eftirlitsaðila til upplýsingaöflunar, viðurlagaákvæði og heimildir til setningar stjórnvaldsfyrirmæla. Með reglugerðinni er settur rammi um notkun heitanna ELTIF og evrópskir langtímafjárfestingarsjóðir fyrir þá rekstraraðila sem kjósa að markaðssetja slíka sjóði. Í reglugerðinni er kveðið á um þau skilyrði sem uppfylla þarf til þess að unnt sé að markaðssetja sjóði sem þessa innan EES bæði til fagfjárfesta og einnig almennra fjárfesta. Þau skilyrði varða m.a. staðfestingu sjóðanna, samþykki yfirvalda á rekstraraðila ELTIF-sjóðs, fjárfestingarheimildir sjóðanna, gagnsæiskröfur og kröfur vegna markaðssetningar til almennra fjárfesta.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt nær óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB)  2015/760 frá 29. apríl 2015 um evrópska langtímafjárfestingarsjóði.


Síðast breytt 29.03.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.